Krakkanámskeið 16-20.júní
Krakkanámskeið 16-20.júní
Aldur: miðað við 6-10 ára
Dagsetning: 16-20.júní (ath. ekki kennt 17.júní)
Tími: kl. 9.00-12.00
Verð: 32.000
Hámarksfjöldi: 8 börn
Innifalið: leiðsögn, leir, öll vinnutól, leirlitir, glerjun og brennsla
Kaffitími: Börn hafi með sér einhvern léttan bita
Staðsetning: Vinnustofa Studio Miklo, Krókhálsi 6
Á þessu skapandi sumarnámskeiði læra börnin grunnaðferðir í leirmótun.
Unnið verður út frá fjölbreyttum þemum sem ýta undir ímyndunarafl og sjálfstæða sköpun. Hver og einn fær að móta sína eigin muni, bæði nytsamlega hluti sem og skúlptúríska hluti sem endurspegla persónulegan stíl þeirra. Í boði verður að mála hlutina með litríkum leirlitum áður en þeir eru svo glerjaðir og brenndir.
Námskeiðið er hannað til að efla sköpunargleði og sjálfstraust barna á skapandi hátt. Þau fá að vinna undir leiðsögn en jafnframt njóta frelsis til að prófa sig áfram og skapa út frá eigin hugmyndum.
Eftir námskeiðið munu hlutirnir verða brenndir og glerjaðir og afhendir u.þ.b. tveim vikum síðar.
Leiðbeinandi: Hjördís Gestsdóttir
Couldn't load pickup availability
Share
